Wednesday, March 6, 2013

Fyrsta blogg




         Við vinkonurnar ákváðum fyrir stuttu að prufa að stofna blogg þar sem við myndum allra helst tala um tísku en þó einnig um ýmsa aðra hluti sem vekja áhuga okkar. Við erum báðar bara mjög venjulegar stelpur, ekki ríkar og langt frá því að vita allt um tísku. ( En með vonir um ríkidæmi í framtíðinni, auðvitað) En þar sem okkur finnst mjög gaman að spekúlera og dreyma um tísku þá ákváðum við að safna pælingum okkar saman hér á eitt blogg.
    Þegar veðrið er svona leiðinlegt eins og hér á íslandi ( afhverju kom snjórinn aftur ??) þá er ekkert annað en að dúða sig upp og bíða eftir betra veðri til að geta farið að nota öll fínu fötin sín, því í raun er mjög erfitt að vera smart í dúnúlpu. Ég sem var komin í haustgírinn! enda hefur hausttískan alltaf verið uppáhaldið mitt.

Pinned Image

Pinned Image

Pinned Image

Annars er markmiðið mitt í þessari viku að finna svona húfu ( beanie) ! þar sem ég týndi uppáhaldshúfunni minni á einhverju djamminu um daginn. Á því enga almennilega eða flotta húfu en að mínu mati er húfa mjög nauðsynleg hér á okkar vindasama landi og þá sérstaklega þegar farið er að kólna aftur.


 - D.

No comments:

Post a Comment